Þjónustuskilmálar
1. Upplýsingar um seljanda
Vefverslunin er rekin af:
-
Bría
-
Heimilisfang:
Maríugata, 210 Garðabær -
Netfang:
bria@bria.is
2. Verð og greiðslur
-
Öll verð í vefversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og geta breyst án fyrirvara
-
Greiðsla fer fram í gegnum greiðslusíðu Teya
3. Handgerðar vörur og frávik
-
Allar okkar vörur eru handgerðar. Vegna eðli handverksins getur verið örlítill munur á litbrigðum, áferð, saumum eða smáatriðum milli vara miðað við myndir á vefnum.
-
Slík frávik teljast ekki sem framleiðslugalli eða galli í skilningi neytendalaga.
4. Merking
-
Ábyrgð kaupanda: Kaupandi ber fulla ábyrgð á því að slá inn rétt nafn, stafsetningu, liti og aðrar upplýsingar við pöntun. Vörur eru merktar nákvæmlega eins og þær eru skráðar í pöntunarkerfinu.
-
Eftir að framleiðsla/merking vörunnar er hafin er ekki hægt að breyta pöntun eða hætta við hana.
5. Skilaréttur og afpöntun
-
Almennar vörur: Við almenn kaup á ómerktum/tilbúnum vörum í vefverslun gildir 14 daga skilaréttur samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016. Varan verður að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi.
-
Sérsniðnar og merktar vörur (undantekning): Samkvæmt 3. mgr. 18 gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016 fellur 14 daga réttur til að hætta við kaup úr gildi þegar um er að ræða vörur sem eru framleiddar samkvæmt forskrift neytenda eða ber skýrt auðkenni hans (t.d. sérmerktar vörur með nafni).
-
Vegna þessa er ekki hægt að skila, skipta eða fá endurgreidda vöru sem hefur verið merkt eða sérsmíðuð eftir pöntun, nema um sannanlegan galla sé að ræða.
6. Afhending og sendingarkostnaður
-
Vegna þess að vörur okkar eru handgerðar og sérmerktar er vinnslutími hverrar pöntunar að jafnaði 3-7 virkir dagar áður en varan er send af stað.
-
Sendingarkostnaður bætist við pöntunina áður en gengið er frá greiðslu.
-
Við sendum vörur með
Dropp og Póstinumog gilda afhendingar- og ábyrgðarskilmálar flutningsaðila um dreifinguna. Seljandi ber ekki ábyrgð á töfum sem verða vegna flutningsaðila.
7. Gallar og kvartanir
-
Ef vara reynist gölluð (t.d. ef merking er röng af hálfu seljanda, eða ef um sauma-/framleiðslugalla er að ræða) munum við bæta úr því með viðgerð, nýrri vöru eða endurgreiðslu eftir atvikum.
-
Kvartanir vegna galla skal senda með tölvupósti á bria@bria.is
ásamt pöntunarnúmeri og ljósmynd af gallanum eins fljótt og auðið er.